JMG

Skrítin vika

Sæl öll

Mér hefur tekist að eiga mjög langa og frekar erfiða viku. Síðasta helgi fór algjörlega í próflestur fyrir þessi yndislegu flugmálastjórnarpróf, sem gengu sem betur fer bara nokkuð vel og talsvert betur en ég bjóst við, fékk semsagt einkunnirnar í gær og voru þær bara allar ásættanlegar og yfir þessu 75% lágmarki sem krafa er gerð um.

Vikan einkennist síðan af Aloe Vera (ekki fyndið), roða, hita og loks kvefi sem ég mixaðist í á fimmtudaginn og tala núna eins og nefmæltur strumpur. En þetta reddast allt saman, nú er bara að svita þetta úr sér og halda ótrauður áfram!

Mér brá óskaplega í gær að hlusta á tilkynningu Geirs og sendi ég honum og fjölskyldunni bestu kveðjur, þetta eru hræðilegar fréttir á versta tíma og sýnir að það er mannskemmandi starf að reyna að stjórna þessu litla landi. Einnig vil ég senda kveðjur til Ingibjargar og hennar fjölskyldu. Vona að Íslendingar geti séð sér fært að sýna Geir tillitsemi og kurteisi á þessum tímum, hann hefur lagt dag við nótt að hjálpa þjóðinni og tekur allt sem hefur gerst virkilega til sín og vill gera allt sem í hans valdi stendur til að hjálpa okkur, því er það örugglega gífurlega erfitt og mikið áfall fyrir hann sjálfan að þurfa að stíga til hliðar af þessum ástæðum.

a94d666672797256111139bd88936168_300x225 

ekki fleira í bili

ást og kossar

Jóhanna M


Gleði

Komið þið sæl og blessuð

Gaman að segja frá því að ég var að klára flugprófin mín hjá FMS í dag og vona ég svo sannarlega að ég hafi staðist þau öll þó að það sé kannski heldur mikil bjartsýni í einu eða tveimur fögum en life goes on!

Annars hef ég í þessarri prófatörn síðustu 10 dagana orðið enn meiri facebook sjúklingur en nokkru sinni fyrr, gat varla lesið eina blaðsíðu án þess að refresha, lesa statusa, skoða myndir hjá fólki sem ég þekki ekki rassgat og lesa veggjasamtöl hjá öðru fólki, án efa besta njósna og slúður tól sem nokkurn tíma hefur verið fundið upp fyrir svona upplýsingafíkla og forvitlinga eins og mig sjálfa. Ótrúlegasta fólk líka mætt þarna, gamlir kennarar, mömmur, pabbar og jafnvel afar og ömmur sem maður skilur ekki alveg af hverju heldur sig ekki bara við mbl.is og prjónaskapinn :)

Annars var Landsfundur Framsóknar um helgina, mikið um að vera þar og það er vonandi að landsfundur Sjálfstæðismanna sjái sér fært að taka einhverjar ákvarðanir í líkingu við það sem framsókn tók af skarið með að gera. Sjálf hef ég ekki myndað mér fyllilega skoðun á evrópusambandinu en ég tel það alveg fullvíst að við þurfum allavega að fara í aðildarviðræður og sjá hvað kemur upp úr krafsinu áður en við afskrifum þetta og einangrum okkur hérna á skerinu. Síðan þegar aðildarsamningur eða drög að honum liggja fyrir þá er bara að meta kosti og galla og kjósa um þetta, Sjálfstæðismenn eru nú orðnir steingeldir ef þeir geta ekki einu sinni samþykkt að ræða þetta. Ég hlakka allavega til að mæta í laugardalshöllina og fylgjast með umræðunum, vona bara að maður verði ekki grýttur niður af grímuklæddum brjálæðingum (!)

Annars er bara skólinn að rúlla af stað, 4 önn mín í HR að byrja og nú eru sko fögin að flækjast, flest enda á orðinu greining og mun ég því verða einstaklega góð í að greina allt mögulegt hvort sem það eru aðgerðir, tölur, rekstur eða eitthvað fleira, síðan var ég líka einstakur samningasnillingur þar sem ég er að taka áfanga í samningatækni mér til gamans svona til að létta þessa greiningu eitthvað :)

góðar stundir

Jóhanna Margrét

female-abs

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

hvernig gengur átakið þitt? ;) 


Átaksmánuðurinn

Sæl og gleðilegt nýtt ár :)

Núna er mánuðurinn sem allir fara í átak, hvort sem það er að hætta að reykja, drekka, drekka kók, borða nammi, léttast, þyngjast o.s.frv. Ég er alveg ein af þeim, búin að vera bakveik og stressfull í alltof marga mánuði þannig ég hef mitt átak núna í dag með því að fara að æfa aftur af hörku og borða hollar.

Samhliða þessu fyllast allar ræktir af fólki þá sérstaklega World Class laugum sem er bara bannað að fara inn fyrir dyr á eftir kl.4 í janúar og febrúar, stöðin löngu búin að sprengja utan af sér og mæli ég með að fara í eina af hinum stöðvunum sem þeir eru búnir að opna um allar trissur, sjálf fer ég alltaf út á nes, þar er allt frekar hreint og nýtt þar sem stöðin er bara eins árs núna í janúar og tiltölulega fáir að æfa nema á álagstímum eins og alls staðar!

En já, vona að allir hafi haft það æðislegt í fríinu og hafi sett sér góð markmið fyrir árið 2009 sem og áætlun um hvernig á að ná þessum markmiðum, you can do it!

Nokkrar myndir til hvatningar :)

Nicky_Whelan02

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

nicky-whelan

Britney

Britney Spears

11. júní

O2 höllin í London

ójá

 

post_image-Britney-spears-circus-image111808

 


Prófatíð

dog 

Jæja nú er að nálgast þungur tími ársins, skemmdegismyrkrið tekur yfir á meðan þreyttir stúdentar sitja sveittir yfir bókunum í vonum að auka visku sína rétt fyrir prófin. Hugsanir um jólaljós og gleði eru víðs fjarri og munu ekki koma upp á yfirborðið fyrren eftir 16. desember.

Ég er alveg á sömu blaðsíðu, búin að fnna stóru flíspeysuna og hlýju náttbuxurnar, hef stillt upp rafmagnsofninum við skrifborðið svo ég frjósi nú ekki uppí þessu illa einangraða risi. Með birgðir af kók light og nammilandi ætla ég að hefja próflestur.

Gangi ykkur vel í prófunum :) 

-Jóhanna 


It's not just banking, banking, banking!

  

make-money-roadsign_480

Crazy vika að hefjast núna... fylli höfuð mitt stöðugt af nýjum fræðum um vél, mæla, eðlisfræði, fjarskipti, leiðarsögu og veðurfræði flugvélarinnar sem er já misskemmtilegt til að segja sem minnst.

 ----

 Annars sleit ég mig frá lærdómnum í örskotsstund til að mæta á fyrirlestur hjá dr. K. Ravindra gestakennara hjá HR um framtíð Fjármálaverkfræði og hvað fór úrskeiðis í fjármálamörkuðum.

Ég og örugglega fleiri innan fjármálaverkfræðinámsins höfum örlitlar áhyggjur af því hvernig fjármálaheimurinn hefur hrunið undanfarið og því ekki skrítið að við viljum fá smá hughreystingu á að það sem við erum að læra sé ekki tilgangslaust og bara dautt á einni nóttu.

Dr. Ravi hafði mjög góð sjónarmið og talaði sérstaklega um að fjármálaverkfræði væri ekki ávísun á vinnu í banka og það væri það eina sem hægt væri að gera, fjármálaverkfræðin væri aðallega tæki og tól til þess að vinna að áhættustýringu með ýmsum aðferðum og getur við beitt þessum tólum á hvaða iðnað sem er, hann hvatti okkur til að velja okkur iðnað sem við hefðum mikinn áhuga á og tileinka okkur hann og síðan beita því sem við lærum í fjármálaverkfræðinni í þeim iðnaði s.s. orku, tryggingum eða lífeyrissjóðum bara til að nefna nokkra. Allar greinar atvinnulífsins þurfa á áhættustýringu að halda, sérstaklega á tímum sem þessum. Mikill stærðfræðibakgrunnur og góð kynning á hinum ýmsu hliðum áhættustýringar í þessu námi er góður grunnur fyrir atvinnulífið. Við eigum að kalla okkur Risk Managers í stað Financial Engineers a.m.k. á meðan markaðir róast :) Einnig ættum við að styrkja samskiptahæfileika okkar og tileinka okkur ný tungumál sem munu veita okkur forskot á atvinnumarkaði.

Mér fannst mjög gott að heyra þetta, því ég hef sjálf stundum verið í vafa um að það eina sem standi mér til boða eftir útskrift sé bankavinna en svo er greinilega ekki, ég gæti þess vegna tileinkað mér flugbransann og nýtt mér það sem ég hef lært til að starfa þar.

Ravi talaði líka um ástæður hrunsins á undanförnum mánuðum, aðalástæðan sem hann nefndi var græðgi og þá sérstaklega vegna vanmats á þeirri áhættu sem felst í gróðanum. Menn hafa einblínt of mikið á gróðann en ekki á áhættuna sem þeir eru að taka sem er oft gígantísk þegar menn eru búnir að "gíra" sig upp og bera kannski 150-500% meiri gróða en þá líka margfalt meiri áhættu en þá gæti dreymt um. Aðilar í fyrirtækjum þurfa líka að læra að bera meiri ábyrgð á því hvernig þeir fjárfesta peningum fyrirtækisins í stað þess að hugsa einungis um þeirra árangurstengdu greiðslur s.s. bónus fyrir að loka samningi sama hvort samningurinn ber með sér hagnað eða tap fyrir fyrirtækið. Tengja betur ábyrgð og afkomu.

----

-Jóhanna M 

Risk%20Management%20Cycle

 


Fljúga eins og fuglinn


cessna_152

 

 

 

 

 

 

Ég er að læra einkaflugmanninn, það er óskaplega skemmtilegt, frelsandi og róandi að fljúga um loftin blá í 30-40 ára gamalli cessnu 152, tveggja sæta fákur sem gæti þess vegna dottið í sundur á hverri stundu. Æfa beygjur og stall og alls konar brögð en það er það sem ég hef verið að gera síðan í maí.

Í dag fór ég hins vegar í fyrsta yfirlandsflugið mitt, cross country og er það allt önnur upplifun, fara lengra heldur en bara álverið og litla kaffistofan, taka stefnuna yfir borgarfjörðinn og líða svona yfir borgarnesið á sunnudagsmorgni (afsaka ef ég vakti einhvern !). Það er það sem flugið snýst víst meira um að fara frá A til B en ekki bara í hringi, ég hlakka mikið til að geta sest upp í flugvél og flogið eitthvert út á landi, hef séð alltof lítið af þessu fallega landi okkar og hvað er betri leið en að gera það úr loftinu ;)

- - - -

Bond... James Bond er góð, en heldur stutt og lítið um söguþráð, hefði viljað sjá meiri sögu á bak við hlutina og vera ferskari í Casino Royal þar sem þetta er framhald af henni.  Flott mynd samt.

- - - -

Ég er orðin hálf leið á að lesa fréttir, var alveg sjúk í þær fyrir mánuði þegar allt var að gerast en núna þá er þetta allt blammeringar og leiðindi og fleiri leiðindi koma upp á borðið með hverjum deginum sem líður. Það á held ég því miður alveg rosalega mikið eftir að koma upp á yfirborðið varðandi þessa banka og sýnir þetta viðtal við Sigurð Einarsson í markaðnum í gær það greinilega. Hvað hafa þessir menn eiginlega verið að gera? úff úff úff...

 

-Jóhanna M 


Íslenskt, já takk!

 

c_users_ice_pictures_iceland_skjaldamerki

Ég á stundum mjög erfitt með að skilja íslensku þjóðina... Undanfarinn mánuð hefur þetta land þurft að þola þvílíkt óveður á fjármálamörkuðum að slíkt hefur ekki heyrst áður. Ríkið, fjölmiðlar og öll fyrirtæki róa lífróður, bankarnar þjóðnýttir og fjöldauppsagnir daglegir atburðir. Gjaldeyrishöft eru tekin upp að nýju og erfitt verður að flytja inn hina ýmsu munaðarvöru á næstu vikum og mánuðum. Ráðamenn biðja fólk að halda að sér höndum, fara varlega með peninga og margir sitja í súpunni vegna gengistryggðra lána eða verðtryggingar.

Þrátt fyrir allt þetta þá var stappað í kringlunni, smáralind, ikea og öllum þessum stöðum þar sem hægt er að eyða eyða eyða um helgina. Íslenska þjóðin skilur greinilega þetta allt þannig... úff gengið er að hækka úff þá mun allt hækka og þá get ég ekki keypt mér föt/skó/tæki/innréttingar o.s.frv. eða þau hugsar úff jólagjafirnar verða kannski ekki til sölu, beint að hoppa beint út í kringlu, eða öllum peningunum sem ég var að fá útborgað áður en Davíð kemur á tekur þá í burtu... úff segi ég bara.

Einhver gáfaður maður sagði um daginn að nú væri einmitt rétti tíminn til að kenna íslendingum að spara, ég gæti ekki verið meira sammála því, við þurfum aðeins að pæla í því hvað við straujum kortið oft og kaupum allt sem hugurinn girnist hvort sem það eru sólarlandaferðir, bilar, hús eða bara rándýr matur í hádeginu dag hvern.

Varðandi jólin þá er bara kominn tími til að endurvekja gömlu hættina, gefa íslenskt, kaupa íslenskt og ferðast innanlands. Í guðanna bænum slappið af út af jólagjöfunum, það gæti alveg verið að þú verðir bara þessi asnalegi sem keyptir eitthvað útlenskt og rándýrt þegar allir hinir í fjölskyldunni munu gefa kerti, spil og lopapeysur.

 -Jóhanna M

myvatn_jolasveinar-040myvatn_jolasveinar


Hrósið

Okkur langar óstjórnlega í hund þessa dagana...en þar sem við búum á fjórðu hæð í blokk þá er það heldur hæpið. Væri samt gaman að hafa einn lítinn að skemmta manni yfir lærdóminum...þeir eru líka svo sætir

beagle_pup

--- 

66°north er nýja viðhaldið mitt, hlýja, mjúka og fallega nýja úlpan mín heldur utan um mig á kvöldin í leiðilegum flugskólatímum, á morgnanna á leiðinni í skólann í nístandi kulda og þegar maður þarf að hlaupa milli húsa í óveðrinu. Ást við fyrstu sýn!

 W11770-900

---

 Einnig vil ég dásama dagatalsforritið ical sem fylgir með maccanum  það er án efa besta skipulagstæki sem mögulega er hægt að finna, hægt að lita mismunandi viðburði, stilla nákvæmar tímasetningar, to-do listar þannig allt verður voða fallegt þó það sé alltof mikið að gera. 

 

ical_hero20071009
 
--- 

Hemmi Gunn

Góðan Daginn 

Þar sem ég er svo mikill morgunhani á sunnudögum, einkum vegna lærdóms, þá er ég núna farin að vera eins og versta húsmóðir í vesturbænum og hlusta á sunnudagsmorgna með Hemma Gunn og er það ágætis skemmtun yfir stærðfræðidæmunum, hemmi spilar gömul og góð lög, er jákvæður, hress og bara nokkuð skemmtilegur. Ég held reyndar að ég sé frekar gömul sál því ég syng og tralla með hinum ýmsu lögum sem jafnaldrar mínir þekkja varla eins hljómum og dátunum :) Held það sé afleiðing af því að vera örverpi eldri foreldra.

 Í tilefni af Hemma Gunn rakst ég á þetta skondna myndband sem ætti að fá fólk til að brosa :)

 

-Jóhanna 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband